Thursday, February 09, 2006

Í dag keypti ég mér nýja Gillett max 3 turbo raksköfu.
Slíkt verkfæri hef ég ekki átt í mörg ár, man síðast eftir að hafa notað eina þesskonar þegar ég flutti frá Fróni forðum, þe. haust 2003. Enda raka ég mig afar sjaldan, helst ekki nema tvisvar sinnum í mánuði, og hef ég átt til þess verks ágætan rafhlöðuskeggskera, sem gerir manni kleyft að stilla skegglengdina í millimetravís.
En þessu nýja vopni beitti ég á vangaskeggið árla dags og voru hin fyrstu viðbrögð jákvæð. Á götum úti brosti fólk til mín eins og ég væri nafntogaður að einhverju leiti og þegar í skólann kom var mér líkt við nútíma poppstjörnur. Samnemendur mínir af kvenkyni vóru þó áberandi meira eftirtektarsamir en þegar út spurðist, vildu þeir af hinu kyninu, karls, heldur halda í þá gömlu ásjónu, sem áður var, því þótti þeim það betur fara á sviði og sæma manngervingunum mínum betur.

Þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, verið þið sæl.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home