Sunday, May 21, 2006

Hér sé stuð! Posted by Picasa

Wednesday, May 17, 2006

2000 LEIKURINN 2006

Kæru gestir,
þá er komið að því.
2000 leikurinn sí og ævinsæli heldur nú áfram.

Sért þú, ágæti aðkomumaður, númer 2000 á hauskúputeljaranum hér fyrir neðan, muntu hljóta litprentað póstkort frá Vínarborg, Austurríki að launum. Það eina sem þú þarft að gera er að skrifa nafnið þitt og heimilisfang hér í commentin fyrir neðan og staðfesta þátttökuna, ásamt því að skrifa fallega kveðju með.
Einnig kemur til greina að veitt verði verðlaun fyrir 2001. og 2002. sætið, séu kveðjurnar þess fallegri.

Þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, verið þið sæl.

Monday, May 15, 2006

 Posted by Picasa

Hér er allt í ljómandi sómanum.
Veðrið er orðið betra en óalgengt íslenskt sumarveður og
Siggi bró, ásamt fylgdarliði kemur á fimmtudaginn
og verður í viku.
Get tekið á móti fleiri heimsóknum í júlí, ef fólk pantar tímanlega.
Syng í fjórum sýningum 30. júní til 12. júlí á sumarhátíð á vegum
Volksoper hafi einhver áhuga. (Kirkjuópera eftir Britten)
Annars bara,
verið þið hress,
einn, tveir og bless.

(Minni svo á 2000 leikinn skemmtilega, nái síðan óvæntum aðsóknum,
mun sá og hinn sami, sem skráir sig sem 2000. heimsækjandann hljóta litprentað
póstkort að launum.)

Þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, verið þið sæl.

Monday, May 08, 2006

Það hamast,
en ég veit að það verður samt allt í lagi,
blóðsólin skín.

Þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, verið þið sæl.

Tuesday, May 02, 2006

Omnia mutantur - nihil interit

Þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, verið þið sæl.